LiFðU lÍfInU oG nJóTtU þEsS!!!

Fáskrúðsfjöður i fréttum!!!

10.12.2007 10:33:38 / asdisjo

NÝ SÍÐA!!

Hæhæ

komin með nýja síðu

              http://www.asdisjo.bloggar.is

endilega kíkja og kvitta!


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 21:54:19 / asdisjo

Búin í Sumarfríi....

...það er að segja bloggsumarfríi! :)

þetta hefur verið ágætt sumar bara þið fenguð nú smá smakk af því með færslum frá Tyrklandi, en nú er ég að pæla í að bæta aðeins úr þessu bloggleysi hjá mér! ;)

En í þetta skipti ætla ég bara að koma með eitt gott punktablogg.

Reyni að segja frá öllu sem ég hef gert og ekki sagt frá....

 

:!: Ég og mamma héldum upp á 75 ára afmæli saman sem að var bara gaman, og ég fékk fullt af pökkum, takk fyrir það.

:!: Ég fór með systur minni til Tyrklands, og fenguð þið smá smjörþef af þeirr ferð á emðan ég var úti. En sú ferð var ansi góð....en ekki eins góð og í fyrra.

:!: Ég kom heim og gerði ósköp lítið

:!: Ég fékk heimsókn frá 5 köppum úr Hafnarfirði sem voru að ferðast hringinn í kringum landið, og var það mjög gaman. Takk fyrir komuna strákar.

:!: Ég fékk Fannar að láni í einhverja 4 daga til að hjálpa mér aðeins í búðinni, og óhætt er að segja að hann hafi hreinlega gert kraftaverk á ekki lengri tíma. Takk fyrir hjálpina Fannar.

:!: Ég ákvað að missa af FRÖNSKUM DÖGUM þetta árið og vera í sveitinni hjá betri helmingnum og fjölskyldu hans, sem að var alveg yndislegt. Það var ekki einu sinni símasamband þar þannig að ég fékk engin "skemmtileg" símtöl af balli eða neitt. En meira frí er ekki hægt að fá, engin sími og bara sveitin í kringum mann = Æðislegt. Takk fyrir frábæra helgi Family Lund

:!: Helgi elskan kom svo með mér heim á þriðjudeginum og áttum við 4 góða daga hérna heima á fásk í notalega húsinu mínu.

:!: Við ákváðum svo að skella okkur til möms og paps á Akureyri á laugardeginum, sem að ég sé sko ekki eftir. Viggi og Víví komu líka og skelltum við okkur á 2 böll á laugardagskvöldið það er kíktum fyrst á vélsmiðjuna þar sem Von og BÓ voru að spila jújú...góð hljómsveit... en meðalaldurinn þar svona um 55 ára og plássið svona 1/5 ú fermeter á mann....það var ekki mjög gaman þannig að við ákváðum að kíkja á stuðmenn í sjallanum = Ég, Helgi, viggi, víví, mamma, pabbi, Heimir, Sæja, Pálmar og einhverjir og vitið þið hvað það er langt síðan ég hef dansað svona rosalega mikið á balli = ég skemmti mér alveg konunglega.

:!:  Sunnudagurinn fór nú bara meira og minna í tjill...sund....varðeldur....flugeldasýning....og ég heim að sofa. Helgi, Viggi og víví, skelltu sér á froðudiskótek en sú gamla var bara í kotinu hjá möms og paps :D

:!:Heim á mánudaginn....:whut:

:!:  Vinnan....nenni ekki að tala um hana!!!!

:!:  Fiskidaga á Dalvík um helgina og Helgi kemur líka vívívíví...... þannig að það verður ekkert Helgafrí!!! hahahhahahhha......

 

Gott í bili love u all'

-Á- 

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

15.06.2007 15:10:46 / asdisjo

afram blogg fra ...

Tyrklandı.

Ja nuna er klukkan ordın 1800 hja mer og vıd vorum ad skrıda af strondınnı. tetta hljomar svona eıns og vıd seum bunar ad lıggja a strondınnı ı allan dag en tad er ekkı alveg svo gott. En vedrıd er buıd ad vera rosa gott og allt gengur sınn vanagang herna a marmarıs vıd voknum (stundum reyndar adeıns of seınt) faum okkur ad borda leggjumst a strondına (tad er ad segja ef vıd voknum nogu snemma) forum heım ı sturtu tokum okkur tıl fyrır kvoldıd forum og faum okkur ad borda og svo er tad bara PARTY. og heım ad sofa.

vorum bunar ad kynnast herna voda nıce bresku parı sem ad vıd vorum eıtthvad ad hanga med. svo ı gaer for gaurınn adeıns yfıf strıkıd, s.s. afengıslega sed og rakkadı tyrkı nıdur vıd strak sem er tyrkı og er ad vınna a barnum sem ad vıd sıtjum alltaf a, eg sagdı honum ad slaka adeıns a og hugsa adeıns um tad sem hann vaerı ad segja og gera ser greın fyrır tvı hvar hann vaerı staddur en ta beısıkklı rak hann okkur bara ı burtu og vıd fengum okkur bara saetı a odru bordı...mjog serstakt. tannıg ad tar for frıa gıstıngın okkar sem ad vıd aetludum ad notu okkur ef vıd myndum nu skella okkur a leık ı haust eda eıtthvad....

Heldum upp a afmaelıd hennar sıgurveıgar ı gaer med rosa flottrı afmaelıskoku og magadansmaer sem ad btw var karlmadur. og tok okkur ı sma kannslu sem ad gekk nu bara svona upp og ofan. forum svo a karıokı bar tar sem ad eg tok nun eınn gamlan og godan slagara med take that....teır sem tekkja mıg vıta nu alveg ad get nakvaemlega ekkert sungıd.....

jaeja eg aetla nu ad komu mer ut ur tessarı hıtamollu sem er herna ınnı....

bıd ad heılsa ı bılı.

-asdıs-


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.06.2007 14:12:44 / asdisjo

Tyrkland....

....er alltaf jafn aedıslegt.

Vid sıtjum nuna a ınternetkaffı a bıkını og ad kafna ur hıta. B'unar ad lıggja a strondınnı ı allan dag og hafa tad nıce. Tad er ekkı eıns heıtt herna og tegar ad vıd vorum herna ı fyrra og vıd erum eıgınlega bara fegnar. Vid kynntumst parı fra Englandı herna og erum ad fara med teım  a bar-street ı kvold tad er bara heıl gata med endalaust af flottum dansstodum. hlokkum bara tıl sko..

Ef tad er eınhver sem ad les tetta blessada blogg hja mer ennta ta bara bıd eg ad heılsa ollum og vona ad allır hafı tad jafn gott og eg akkuratt nuna!!! :)

Kannskı ad madur bloggı aftur fra marmarıs vıd taekıfaerı....aldreı ad vıta madur verdur ad fara allaleıd tıl tyrklands tıl tess ad hafa tıma tıl tess ad blogga....

 

kaeraqr kvedjur fra tyrklandı

Asdis


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 21:00:24 / asdisjo

Og þá var kominn annar sunnudagur!

Já það eru víst nokkrir sunnudagar síðan ég bloggaði síðast.

En það er best að skella inn einu á punktunum bara...

:!: Alan er dottinn út úr X-factor, það féllu sko tár á mínu heimili eins og í smáralindinni. Strákurinn átti þetta sko EKKI skilið miðað við frammistöðu sína þetta kvöld.

:!: Ég er byrjuð aftur í Boot Camp og er það náttla bara snilld.

:!: Helgin hefur verið ágæt, ýmislegt gert bæði dapurt og skemmtilegt.

:!: Árshátíð framundan = Broadway, góður matur, Tina Turner tribute show, og vonandi feikna fjör.

:!: Við systur búnar að bóka og borga ferð til Marmaris. Förum út 8. Júní....;)

:!: Ég er frekar þunn núna og ekki að nenna þessu

:!: Ásta vinkona átti að eiga 8. mars og að mér bestvitandi er ekkert að gerast ennþá og svo á Hanna Guðbjörg að eiga í dag og ekki hef ég fengið neinar fréttir að það sé eitthvað að gerast þar heldur. Mikið hlítur að vera gott að búa í kviðnum á þessum stúlkum.

:!: Ég elska ykkur ÖLL

:!: Og ég er farin að sofa til að vakna í Boot Camp á morgun.

:!: over and out

:!: -Á-


» 15 hafa sagt sína skoðun

04.02.2007 18:40:55 / asdisjo

Sunnudagur....

....jájá það er kominn sunnudagur og helgin bara búin. Ég er búin að vera í fríi um helgina og er ég nokk sátt með það fyrirkomulag sem ég hef sett á í vinnunni minni. Þ.e. að nú vinn ég bara þriðju hverja helgi. En núna tekur við löng og ströng vinnuvika þarf að koma í lag öllu því sem sitið hefur á hakanum hjá mér síðustu vikur.

Það er Búttusprell í fyrramálið og svo þarf ég að bruna á Fásk eftir tíman og kíkja til Tannsa að laga til í kjaftinum. Svo er það bara fótboltaæfing í kvölf og já... það er alltaf nóg að gera nenni bara ekki að skrifa það allt saman.

En eitt verð ég að skrifa um og það er X-factor!!!! Mér fannst hann ALAN EKKI eiga það skilið að vera á meðal 2 neðstu á föstudaginn....hann hefði kannski þurft að fá þekktara og fjörugra lag. En engu að síður fannst mér þetta mjög vel gert hjá honum og mun betra heldur en sumir þarna og vil ég meðal annars nefna Jóhönnu og Gylfa??? Kannski er ég hlutdræg og allt það en tel mig nokk viss um það að ALAN átti þetta ALLS EKKI SKILIÐ!!! :^):^):^)Eins og Einar sagði þá er ALAN ekki bara góður á íslenskan mælikvarða heldur á HEIMSMÆLIKVARÐA... allavega endilega segið ykkar skoðun á þessu...

jæja þarf að skella mér í boltafötin og á æfingu...

sjáumst

-Á-


» 7 hafa sagt sína skoðun

30.01.2007 22:28:20 / asdisjo

Fásk...vinn...búttí....

Já maður er bara kominn heim aftur..endurnærður og tilbúinn að takast á við hversdagsleikan. Reykjavíkurferðin var að mestu leyti mjög góð...gerði nákvæmlega ekkert nema að hvíla mig og var það alveg ótrúlega gott. ég svaf ekki nema einhverja 15 tíma á laugardagsnótt eða aðfaranótt sunnudags. Það var mjög gott og nauðsynlegt. Ég kom heim í morgunn og fór þá nánast beint að vinna, það var nóg að gera hjá mér þó svo að ég hafi nú ekki farið mikið í búðina var bara mest allan dag inni á skrifstofu að vinna tölvuvinnuna mína, mér finnst svoleiðis dagar svo leiðinlegir, þ.e. þegar ég kemst ekkert inn í búð að sjæna eitthvað til. En já ég er að hugsa um að taka mikilvægar ákvarðanir þessa dagana...þetta er HUGE sem að ég er að hugsa um að gera þessa dagana og já ég get eiginlega ekkert meira sagt um þetta í bili...mamma var ekki alveg á sama máli og ég....en þetta er eitthvað sem ég þarf að hugsa vandlega um áður en ákvörðun verður tekin og já tíminnn leiðir allt í ljós!!! Það er Boot Camp í fyrramálið og get ég eiginlega ekki beðið eftir því að að fara að hrista af mér slenið, hef ekki hreyst á mér rassgatið síðan á föstudaginn...ég má vera stolt af því að ég fékk mér ekki Dominos, ekki McDonalds, ekki subway og ekkert svona virkilega skyndó eins og ég geri eiginlega alltaf þegar ég fer í bæinn...þetta er nefnilega svo ógisslega gott.... Allavega besta ð koma sér í háttinn svo að maður vakni nú í Búttusprell...

Maður er nú líka hálfsvekktur yfir handboltanum, en einhvern veginn vissi ég allan tíman að Danir myndu hafa þetta.

LOV YA' -Á-


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.01.2007 19:38:11 / asdisjo

Reykjavík....

...er alltaf jafn blaut. Ég get svarið fyrir það að það er alltaf rigning hérna. Það er búið að vera rigning síðan ég kom hingað. Það er svo sem ágætt þar sem að maður er búin að liggja í rúminu nánast síðan maður kom. Þessu ferð var einmitt ætluð í það að slaka ærlega á og hlaða batteríin, þau voru nefnilega alveg að verða tóm.

Ég sem sagt kom hingað um klukkan 17 á föstudaginn (það seinkaði eitthvað fluginu vegna bilunar) og þá fórum við með Guðmar til Eydísar og við fórum upp í Grafarholt (við=ég og Helgi) að taka okkur til fyrir X-Factor. Svo brunuðum við inn í Garðabæ aftur að sækja Guðmar og þaðan upp í smáralind. Við fórum sem sagt á x-factor sem að var bara skemmtilegt sko. ALAN er náttla okkar maður og verður erfitt að slá hann út að mínu mati, eina sem gæti orðið honum að falli er að hann er ekki með eins stórt lið á bak við sig eins og allir hinir því að hann er náttla ekki Íslendingur í húð og hár. En hann á sko digga stuðningsmenn í minni fjölskyldu og stóran vinahóp sem á eftir að gefa honum sitt atkvæði. Svo endilega kjósið þann sem ykkur þykir bestur....sem er auðvita ALAN!

Æi þarf að fara blogga kannski meira í kvöld eða morgun!!

ÁFRAM ALAN

-Á-


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.01.2007 22:13:01 / asdisjo

Gleðilegt nýtt ár!!!

Komiði sæl öll sömul,

Ég er ekki alveg dauð en það fer nú held ég bara að líða að því. Ég er búin að vinna eins og skepna síðan að ég tók við búðinni....en... ég sé fram á betri tíma þar sem að ég er búin að ráða aðstoðarverslunarstjóra og vona ég bara að það eigi allt eftir að ganga upp.

Ég hef eiginlega enga orku til þess að blogga neitt núna en eins og ég segi þá sé ég fram á bjarta tíma. Er að fara suður á föstudaginn að hitta elskurnar mínar og fara á X-factor að styðja hann Alan...sem að skal sko rústa þessu hann er lang bestur og voan ég að þið séuð mér alveg hjartanlega sammála. Hlustið bara á hann það er alveg ótrúlegt hvað hann syngur vel þessi drengur svo að ég segi bara ÁFRAM ALAN og sjáumst fljótlega öll sömul.

LOVE YOU GUYS...


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.12.2006 20:28:45 / asdisjo

jóla hvað...???

Já ég leyfi mér að segja Jóla hvað....þar sem að það er einhvernveginn enginn jólahugur í mér þessi jólin...ég lít meira á þesa tvo daga sem ég hef í frí sem daga til þess að sofa út og hlaða batteríin fyrir næstu törn....

En allavega þá er bara gott að frétta ég bara vinn og vinn og finnst það eiginlega bara gaman sko. Nema hvað að það væri gott að fá svona eins og aðra hverja helgi til þess að sofa út, en það kemur að því, vonandi.

Annan í jólum ball í kvöld það væri nú gaman að skella sér...en maður veit ekki hvað gera skal, hef ekki heyrt í neinum sem að er eitthvað sérstaklega heitur fyrir því.Ég fékk fullt af jólagjöfum... beautybox og Matrix hárvörur, sumir vita alveg hvað þeir eiga að kaupa, J.T. diskinn algjör snilld, Lost seríu 1 og nike bol fyrir Boot campið á nýja árinu (sjitt hvað ég hlakka til að svitna og puða aftur), ógisslega fínan svartan bol með svona gull einhverju, nike jakka bláan og hvítan bara flottan sko, náttbuxur og síðast en ekki síst gjeggjaða Levi's kápu sem er já bara flott að mínu mati....

allavega ég nenni ekki að skrifa meira núna er að horfa á one tree hill seríuna sem að sista fékk í jólagjöf....

vonandi líður ekki aftur svona langt á milli blogga hjá mér aftur...elska ykkur öll og gleðileg jól...

-Á-


» 9 hafa sagt sína skoðun

03.12.2006 22:32:53 / asdisjo

Löng helgi....

...að baki.

Já það má nú segja það að helgin hafi heldur betur verið tekin í nefið.

Ég náttla var bara í minni vinnu á föstudaginn, og var komin heim um klukkan 20:00 og gerði nú ósköp lítið það kvöld eldaði fajitas og horfði á X-factor, sem að mér þykir alveg ótrúlega skemmtilegt enn sem komið er!!!! en ég var svo bara farin að sofa um klukkan 23:00

Mætti svo aftur í mína vinnu klukkan 8:00 á laugardagsmorgunn og var það hörkufjör að venju, það er einhvern vegin mikið skemmtilegra í vinnunni hjá mér núna. Þaut svo heim í sturtu eftir vinnu klukkan 19:00 og var komin inn í skrúð um klukkan 20:00 tilbúin að bera matinn í fólkið sem þangað var komið að skemmta sér og öðrum... Þetta var feikna fjör og alveg nóg að gera. Ég er viss um að ég vaskaði upp svona 500 glös og 300 diska... enda voru hendurnar á mér eins og RISA-rúsína...:D Svo um klukkan 1:00 fór ég heim og skipti um föt og svo inn í skrúð og vaktaði svæðið svo að allt færi vel fram og var það ótrúlegt hvað fólk var rólegt!!! 8| Ég reif svo af nokkrum borðum þegar ballið var að enda og stakk síðan af um klukkan 4:00 og var sofnuð um klukkan 5:00 (það tekur tíma að ná sér niður eftir svona fjör!

Svo var það bara að drífa sig á fætur um hálf átta í morgun með kost á Neskaupsstað og svo var það bara hefðbundinn sunnudagur í KRÓNUNNI til klukka 17:00 ca. fór þá heim horfði smá á imbann borðaði og fór svo á Eskfjörð um klukkan 20:00 með annan kost. Þegar ég kom heim hengdi ég upp síðustu gluggajólaseríuna, en á eftir að hengja upp einhverjar seríur hérna inni hjá mér og gera Kósý!!!:)

Núna er ég komin upp í rúm og er að fara að sofa því það er vinnan, tannlæknir,vinnan, upp í EGS að ná í hana SIRRÝ skvísu sem að ætlar að hjálpa mér í viku 10 daga (hlakka ekkert smá til að fá hana), vinnan, borða, One Tree Hill og sofa!!

Jæja gott í bili

Ásdís


» 15 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 23:00:06 / asdisjo

Verslunarstýran....

...Ásdís!!!

Já gott fólk ég er orðin nýja verslunartýran í Krónunni á Reyðarfirði! Þett hafa verið mjög undarlegir dagar, eða síðan á þriðjudaginn. Þá var mér tilkynnt að Bjarni kallinn væri á förum til þar sem að ónefnt fyrirtæki hafði boðið honum betur. Í dag var svo allt gert formlegt og ég er sem sagt orðin verslunarstýra.

Ég verð að fara að sofa núna því það eru langir og strangir dagar framundan hjá mér, fæ reyndar frábæra stúlku að láni frá Reykjavík til þess að hjálpa mér og já ég hlakka bara til að takast á við þetta verkefni og vona að ég standist væntingar.

Jæja reyni að blogga fljótlega um eitthvað skemmtilegra ;)

Þangað til Góða nótt!!

Ásdís


» 5 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 23:31:45 / asdisjo

Áskorun frá...

....Tinnu!!

Já það er kannski kominn tími á nýja færslu hérna.

Það hefur nú ýmislegt á daga mína drifið síðan ég ákvað að hætta að æfa fótbolta!! ;)

Ég hef t.d. ákveðið að að byrja aftur að æfa, Viddi greyið gleymdi að segja okkur að við gætum farið á eigin vegum, honum er fyrirgefið. Vonandi verður mér fyrirgefið að hafa orðið svona reið, og einhverjir kunna að hafa orðið ósáttir við skrif mín hér vona ég að mér verði fyrirgefið ef ég var að fara með vitlaust mál.:$

Já ég var að vinna til 16 síðustu fyrir utan þriðjudaginn þá lenti ég í smákökuflóði í vinnunni, í orðsins fyllstu merkingu! Það komu einhver 7 bretti af smákökum og þurfti ég ða koma þeim fyrir og held ég að mér hafi tekist það ágætlega, nema hvað að stæðurnar eru búnar að hrynja þrisvar síðan ég setti þær upp!!!:evil: Jamm og ég missti eina stæðuna framan í mig þannig að ég fékk sár á hökuna!!!:^)

Svo kom hann Helgi minn til mín á föstudaginn og höfðum við það bara notalegt fyrir framan sjónvarpið á föstudagskvöldið, fórum í Molan á laugardaginn og elduðum okkur pizzu á laugardagskvöldið... og þá byrjaði fjörið!!! Við fórum í heimsókn til Unu að spila og spiluðum við Pictionary. Víví var með okkur og voru Helgi og Víví saman í liði og ég og Una og svo komu Tinna og Siggi og voru þau saman í liði. Þetta gekk allt saman vel og hélt ég að ég og Una myndum nú rústa þessu þar sem að við vorum komnar á endareit töluvert á undan öllum hinum en svo fór nú ekki, Víví og Helgi unnu sem betur fer fyrir alla þar sem að Helgi er einn sá tapsárasti!!! ;) Víví var nánast lamin fyrir að fatta ekki kúrekaSTELPA eftir að Helgi var búinn að "lemja" svo oft í hana að hana verkjaði....:D Allavega svo vorum við komin í gírinn og langaði að fara á kósý, og var því reddað og keyrði hann Smári (pabbi Tinnu) okkur á Kósý og var feikna fjör þar...en svo var annað mál að komast heim, ætluðum okkur að taka leigubíl og já já það var einhver hálf´tima bið í hann og var manni orðið anskoti kalt að bíða....en nei þá bilaði leigubíllinn:frown: þannig að ég held að við höfum beðið í eitthvað einn og hálfan tíma eftir því að komast heim og var ég frosin í hel....en ég er kát allavega ennþá á lífi...

Úff nenni ekki að skrifa meira í bili... set inn myndir af helginni inn um leiðinni um leið og ég finn usbtengið til þess að setja myndir af vélinni inn í tölvuna.

Bless í bili

-Ásdís- 


» 5 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 17:24:28 / asdisjo

Fótboltadeild Leiknis!!!

Já titillinn er ekki að ástæðulausu...

...ég er ansi reið og pirruð núna vegna framkomu fótboltadeildar Leiknis í garð okkar stelpnanna í meistaraflokk kvenna. Þannig er mál með vexti að þessa helgi sem að er að líða var innanhúsmeistaramót meistaraflokks kvenna í Reykjavík. Já þetta vissi ég ekki fyrr en á föstudaginn (kannski heimskulegt þar sem ég er að æfa fótbolta að fylgjast ekki með því en kannski er það ekki svo auðvelt), og þá frétti ég það af því að það átti ekki að leyfa okkur að fara!!!! Nei það er of dýrt fyrir félagið að senda okkur og það er of dýrt að skrá okkur úr keppni. NOTA BENE VIÐ VORUM SKRÁÐAR Í KEPPNI!!!! Þannig að "einhverjar" stelpur (þær hafa hins vegar örugglega staðið sig vel, ekkert út á þær að setja) voru látnar spila (það er leyfilegt að vera með ólöglega leikmenn).... Ég bara spyr hefði ekki verið hægt að leggja þetta í það minnsta undir okkur sem að æfum fótbolta með félaginu 2-3 í viku? Hvort að við vildum t.d. fjármagna ferðina sjálfar???? Mér finnst þetta vera skýr skilaboð um það að best væri að við myndum bara hætta!!! Við erum með mjög góðan þjálfara að mínu mati og finnst mér það vera aðdáunarvert að hann skuli enn nenna að þjálfa okkur því að við höfum kannski ekki staðið okkur sem best en reynum það þó og hann sér það að viljum gera okkar besta!!! Ég hef allavega ákveðið að hætta að æfa enn sem komið er... held bara áfram að búttast og verð svo bara fittness drottning um þrítugt!!! HAHAHAHA...... :lol:

Allavega mér finnst þetta ansi skítt!!!

Takk fyrir mig blogga meira seinna þegar reiðin er runnin af mér!!!

Ásdís:^)


» 13 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 22:30:21 / asdisjo

Meiri snjó meiri snjó ...

... meiri snjó!!!

Já það hefur sko heldur betur snjóað síðan ég bloggaði síðast!!! ;)

En allavega það er ósköp lítið að frétta af mér.... ég var í fríi um síðustu helgi og Helgi ætlaði nú að koma í heimsókn en þar sem að það var ekkert flogið kom enginn Helgi!! Ég og pabbi ætluðum að fara skjóta rjúpu á laugardagsmorguninn en við fórum ekkert að skjóta rjúpur því að veðrið var svo klikkað...þannig að við sátum örugglega í 2 klukkutíma og spiluðum Kasínu...;) Mamma, pabbi, Pálmar, Ásta, Sibba og Grímur ætluðu svo að fara á Hornafjörð á einhverja leiksýningu og gista á hóteli og voða næs á laugardeginum en fóru ekki neitt því að veðrið var svo klikkað!! Það er nú meira hvað þetta veður getur sett margt úr skorðum hérna. En ég lét veðrið ekki stoppa mig því að maður er nú bara í fríi aðra hverja helgi og þá langar manni að gera eitthvað að annað en að hanga inni. Þannig að ég dró Tótumæju með mér til Unu og við fórum að sötra bjór...það náttla endaði með því að ég náði að draga Unu með mér á Kósý en ekk tókst mér að draga hana Tótu mína með mér, en það tekst bara næst, er þaggi Þórunn???? Það er alltaf jafn fróðlegt að koma á Kósý, en í þetta skipti var nú bara ansi góður slatti af Íslendingum á svæðinu, og skemmti ég mér alveg konunglega og vona að allir hinir sem voru þarna hafi gert slíkt hið sama :$

Sunnudagurinn fór svo eiginlega bara í eintóma þynnku.... reyndi að læra eitthvað en það gengur ekki vel þegar maður er með hausverk og verki eiginlega allsstaðar. Þannig að ég eiginlega lá í rúminu alveg þangað til að ég fór á fótboltaæfingu klukkan hálf átta, það var bara fínasta æfing!!!

Svo bara tók við enn ein vinnuvikan... Boot Camp á mánudaginn, alltaf jafn skemmtilegt...en þetta er síðasta vikan í þessu námskeiði og er eins gott að maður hafi agann í það að fara að æfa eitthvað sjálfur!!! En hún Jóhanna Búttuþjálfari er að fara til Kúbu.... það verður munur fyrir hana að fara úr snjónum í sólina!! Úff Jóhanna má ég koma með???

Þriðjudagurinn var eins og venjulega nema ég samdi við Bjarna um að fá að fara fyrr til þess að reyna að læra eitthvað og sleppti meira að segja fótboltaæfingu til þess að reyna að læra og jújú ég lærði og lærði en fannst ekkert ganga samt!!!

Svaf svo yfir mig í Boot Camp í morgun og langaði mest til þess að grenja þegar ég vaknaði klukkan 6:15 en tíminn byrjar klukkan 6, á Reyðarfirði!!!:cry:

Það er voða gaman hjá mér þessa dagana og vona ég að það haldi áfram að vera svona gaman hjá mér!!!

-Það skiptir nefnilega svo mikli máli að manni líði vel-

Bless í bili

-Ásdís-


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Vi�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1707 dögum
Dagsetning
9. febrúar 2012